wordpress visitor counter

Gagnasafn ‘Lýðræði’Gagnasafn

Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online

»He said Britain had provided financial assistance to Iran’s reformists to undermine the hardline clerical regime during June’s disputed presidential elections.

Hossein Rassam, a political analyst with the embassy, said a budget of £300,000 had been allocated by the embassy to establish contacts with political groups, individuals and activists.«

via Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online .

Ef í útlöndum – því ekki heima hjá sér? (Eða þá á Íslandi – ef um “íslenskar” löggur er um að ræða? Þeir læra ýmislegt misjafnt í “útlöndum” – því hef ég komist að síðustu árin…

10

08 2009

Silfur Egils » Úrkynjun

»Við höfum lengi búið við það Íslendingar að stjórnmála- og embættismenn okkar koma flestir úr sama menntaskólanum og sömu lagadeildinni í HÍ; fæstir þeirra hafa einu sinni komið til útlanda enda myndu þeir þá eiga á hættu að detta úr goggunarröðinni í pólitíkinni.

Þessi heimalningsháttur hefur löngum verið einkenni á stjórnmálunum hér; það mætti jafnvel tala um úrkynjun í því sambandi.«

via Silfur Egils » Úrkynjun.

Þótt svo við höfum “lýðræði” er ekki þar með sagt að við höfum eitthvað “val”; tryggilega hefur verið komið í veg fyrir að smáflokkar skemmi fyrir Fjórflokknum með breytingum á kosningalögum. Nærri 100% atkvæðavægi, þar sem það er mest, getur heldur ekki talist til eiginlegs lýðræðis – svo þótt hlutirnir eru svolítið kjósendum að kenna, þá er þeim þó örlítil vorkunn; þeir höfðu ekkert val…

10

08 2009

Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni

Mynd: mbl.is/Stefán

»Mótmælendurnir grýttu eggjum í lögregluna og börðu rúður við lögreglustöðina.«

via Vísir – Grýttu eggjum og börðu rúður á lögreglustöðinni.

Stórhættulegir glæpamenn, sem þarf að snúa niður, berja á með kylfum – og sýna hverjir hafa “valdið”!

08

08 2009

Ráðgjöf kostaði milljarð – mbl.is

»Kostnaður Seðlabankans vegna sérfræðiráðgjafar bandaríska fjárfestingarbankans JP Morgan nam rúmlega einum milljarði króna á síðasta ári.«

via Ráðgjöf kostaði milljarð – mbl.is.

Sjá einnig: Eðlilega staðið að kaupum á ráðgjöf – Vísir.is

Öryrkjar og aldraðir voru krafðir um endurgreiðslu 4ra milljarða – ásamt að taka á sig nærri tveggja milljarða tekjuskerðingu um síðustu áramót. Auðvitað betra að eyða aurunum í “ráðgjöf”, sem hefur skilað okkur hvert? Í faðm enn verri arðræningja, sem hafa skilið eftir sig sviðna jörð um allan heim? Og svo réttlætir Ríkisendurskoðun þessa sóun! Ísland: Minnst spillta landið í veröldinni! Það var okkur selt að minnsta kosti.

08

08 2009

Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is

»Fyrir þessa aðgerð var fólki úr hópnum misþyrmt af lögreglu; 5 sviptir frelsinu og hnepptir í gæsluvarðhald. Lögreglumaður gekk ítrekað í skrokk á einni þeirra handteknu; tók  hana margsinnis hálstaki með þeim afleiðingum að hún átti erfitt með andardrátt, hrinti henni í jörðina og steig að lokum ofan á hana. Viðbrögð annarra sem voru á staðnum – tilraun til að stöðva lögregluofbeldið – kallaði fram fjölda kylfuhögga af hendi lögreglu.«

via Rógburður lögreglu og lygar fjölmiðla – mbl.is.

Segi ekkert – en trúi þeirra hlið málsins. Þekki of marga þarna of náið til að taka ekki mark á orðum þeirra.

08

08 2009

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is

»EN munum samt að fullt af eðlilegum Löggum ! EN HROTTARNIR ná að sverta störf Löggunnar og gera almenning fráhverfan enda ekki ásættanlegt með nokkru móti að hafa OFBELDISMENN í röðum Lögreglunnar ! þess þá heldur að steranotkunn sé “leyfð” þótt vissulega sé mjög ervitt að finna þá fyrr en jafnvel mörgum árum síðar (séu blóðsýni geymd) !«

via Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is.

Ha? Notar lögreglan ofbeldi? Nei, það getur ekki verið! Slíkt kemur aldrei í fréttunum!

08

08 2009

Eyjan » Kyrrsetning eigna auðvelduð. Jóhanna: „Ég vil að það verði farið að taka af festu og hörku á þessu”

johanna-diddi02

»Jóhanna Sigurðardóttir segir stjórnvöld vilja gera það sem til þarf svo hægt sé að kyrrsetja eignir. “Ég vil að það verði farið að taka af festu og hörku á þessu máli,” segir hún í samviðtali við mbl.is. Hún segir ýmislegt koma aftur og aftur upp í hruninu sem sé “alveg ótrúlegt” og gefi ástæðu til að skoða þessi mál.«

via Eyjan » Kyrrsetning eigna auðvelduð. Jóhanna: „Ég vil að það verði farið að taka af festu og hörku á þessu”.

> Jæja, það var þá tími til kominn! Er hún kannski farin að óttast eitthvað, blessunin? Það gæti þó aldrei verið?

07

08 2009

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”

“Ég hef ekki verið í neinum samskiptum við þetta ágæta fólk eftir þennan minnisverða dag, þegar þau tóku upp á því að ganga á bak orða sinna. Ég sé ekki ástæðu til að skiptast á orðum við fólk sem ekki er mark takandi á,”

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”.

Ætli hann gangi til liðs við Framsóknarflokkinn? Það hafa margir haldið því fram gegnum tíðina. Mér er hlýtt til Þráins – en ég skil ekki hans afstöðu í þessum málum.

06

08 2009

Íslendingar=vitleysingar? – veffari.blog.is

“Hvernig væri að gefa Bretum og Hollendingum smá tyggjóklessu til að halda kjafti og framselja þeim gangsterana á silfurfati? Bretar geta yfirheyrt þá að villd og sett í skuldafangelsi innan um ámóta kampavínsleginn þotulýð frá eigin braskaralandi.  -En alls ekki gefa þeim framtíð barna okkar!”

Íslendingar=vitleysingar? – veffari.blog.is.

06

08 2009

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009



Switch to our mobile site