wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘hræðsluáróður’

Drug laws spark drug wars – Winnipeg Free Press

Mickey Mouse Stoned

“But as we know, and as history shows us, if that supposition is not entirely preposterous, it is mostly preposterous. Crime, like nature, abhors a vacuum, and it naturally fills one when it occurs. Prohibition attempted to destroy the market for alcoholic beverages; instead it simply created the organized crime syndicates that plague North American society to this day.”

Drug laws spark drug wars – Winnipeg Free Press.

06

08 2009

Við hvað er þjóðin hrædd ? – haddi9001.blog.is

“Hvers vegna er þessi hræðsla til staðar við það að hafna Icesave ?
Hvað óttumst við svona ?
Hvað óttumst við að bretar, hollendingar, ESB,…. geri okkur ?
Hvenær gerðist það að við týndum niður kjarkinum til að standa á okkar rétti ?
Hvaða heybróka-hjörð er þetta verða niður á Alþingi ?
Hvers vegna stöndum við ekki á okkar rétti og
segjum einfaldlega NEI ?”

Við hvað er þjóðin hrædd ? – haddi9001.blog.is.

Ágæt umræða hérna. Og fín rök!

06

08 2009

Franssave skekur franskan landbúnað – mbl.is

Er þetta ekki bara IceSave fyrir byrjendur?

Og svo ætla þeir ekki að borga; því ættu einhverjir bændur í Frakklandi að komast upp með svona þvætting, en ekki við?

Þessi áróður um útilokun “alþjóðasamfélagsins og Íslandi, ef við ekki borgum, er bara hræðsluáróður og ekkert annað!

Franssave skekur franskan landbúnað – mbl.is.

06

08 2009

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009

Ad hominem – In Memoriam

Það er ekki oft sem ég slæ upp nafni mínu í Google, en vegna tilvitnunnar frá félaga mínum á Fésbókinni neyddist ég til að leita, þar sem ég var þar settur í miður skemmtilegan hóp fólks sem ástæða kreppunnar. Þegar ég fór niður listann, rakst ég á gamla bloggfærslu einstaklings, þar sem hann tekur persónu mína fyrir, dregur áliktanir og fer með staðlausa stafi. Ég hafði bara eitt orð til að lýsa undrun minni: Segðu…

Þeir hafa margir reynt að hrekja málfluttning minn gegnum árin, en fæstir þeirra hafa haft til þess þekkingu, hvorki á mér persónulega né málefninu, til þess að vera svaraverðir. Oftar en ekki eru notuð tilfinningarök, nú eða ráðist á persónu mína beint, með dylgjum og hreinu kjaftæði, sem flokkast mætti undir svokölluð ad hominem-rök; rökleysu og innihaldslaust blaður, sem hefur ekkert með málefnið að gera – hvað þá rökræður. Frekar ráðist á þann sem færir fram rök og reynt að gera lítið úr hans málfluttningi. Slíkt er ekki svaravert, né heldur ástæða til að æsa sig út af – og enn minni í dag en áður; ég hef nefninlega þroskast – gagnrýnisraddirnar greinilega ekki.

Síðan, til að bæta gráu ofan á svart, kemur þessi sami einstaklingur með aðra færslu, þar sem hann þykist færa rök fyrir máli sínu, en fellur enn í sömu gryfjuna og áður. Telur hann sig eflaust vera mjög vitrann á sínu sviði, enda starfsmaður í einhverjum skóla Borgarinnar – en hvort hann hafi einhverja aðra þekkingu á málefninu, efast ég um.

Það er að mestu ungt fólk sem stríðið gegn fíkniefnum beinist að; ungir og óharðnaðir unglingar, sem oftar en ekki er tekið á með hörku laganna – nú, eða bara af hörku, ef þessir sömu unglingar þekkja ekki rétt sinn. Mörg þekki ég dæmi þess, að ungt fólk hefur verið afklætt og niðurlægt, fyrir það eitt að sitja í rangri bifreið á röngum tíma. Jafnvel án þess að kallað hafi verið til barnaverndarnefnd, talað við dómara né haft samband við foreldra þeirra – eins og lög kveða á um. En lögin skipta náttúrulega þá engu máli, sem þurfa engin rök fyrir símum málfluttningi; þeir vita betur – þeir eru jú alvitrir.

Upphrópanir og nafnaköll eru þessu fólki jafn töm og mantra forvarnarforkólfanna, sem hagræða sannleikanum eftir því sem þeim hentar, jafnvel tyggja ofan í unga fólkið hreinar lygar, bara til að vekja hjá þeim ótta og ugg. Slíkt þykja eflaust bara fín vinnubrögð; þeir eru jú að forða “börnunum” frá “fíkniefnadjöflinum” – og hafa meira að segja tekið mína persónu í það bull, til að sýna nú sérstaklega hversu ruglaður ég er vegna kannabisneyslu minnar. Samt verður þeim ekkert ágengt að ráði – unglingarnir eru ekki svo vitlausir, að þeir kunna ekki að nota Google til að afla sér upplýsinga. Ég hef kynnst þeim mörgum til að vita betur. Núverandi forvarnarform býr frekar til tortryggni og vantraust á það sem kemur frá þessum forvarnarforkólfum, heldur en að forða frá þeim bölmóði sem ofneysla vímuefna er í raun og veru.

Í nýjustu færslu varamannsins reynir hann, eins og áður er sagt, að færa fyrir því rök hversvegna kannabis eigi að vera bannað. Þar eru mikið notuð “af-því-bara-rökin” – rökleysa sem hægt er að skjóta í kaf, í raun alla færsluna með einni tilvitnun:

Á þingritaraárum mínum var ég viðstaddur þann sögufræga fund sem samþykkti innflutning á Spánarvínunum. Þá hafði verið algert vínbann í nokkur ár með hörmulegum afleiðingum, smygli, þefi, sektum, þrætum, kærum og bruggi. Þá varð maður að bjarga sér á ýmsa lund t.d. með svokölluðum hundaskömmtum hjá læknum, en það voru 210 grömm af hreinum spíra. En þessi fundur var ákaflega skemmtilegur. Forseti sameinaðs þings, Magnús Kristjánsson, var alltaf að ruglast í ríminu, og Benedikt Sveinsson og Guðmundur Björnsson landlæknir, leiðréttu hann í sífellu, spruttu á fætur og kölluðu til skiptis: „Herra forseti,… herra forseti.” Þeir voru báðir góðglaðir, og það sem verra var olíulampinn í skrifstofu landlæknis hafði ósað allmikið og bar Guðmundur þess ljós merki.[i]

Það er alveg ljóst, að bannárin, bæði hér á Íslandi og í Bandaríkjunum – nú eða hvar sem er í veröldinni – skiluðu ekki þeim árangri sem til var ætlast. Sumir læra bara seint á fyrri mistökum og vilja ólmir viðhalda þeim, eins og að útkoman verði einhver önnur. Litið er framhjá reynslu annarra þjóða í þessum efnum, eins og til dæmis afglæpun Portúgala, sem hefur verið í gildi frá því um aldarmótin. Samfélagslegur kostnaður af banni sem þessu er mun meiri en fólk gerir sér grein fyrir; ekki þarf að lesa sig mikið til til að komast að þeirri niðurstöðu. Meira að segja Þórarinn Tyrfingsson hefur gert sér grein fyrir þessu:

Við segjum okkur eigin þjóð stríð á hendur ef kljáumst við eiturlyfjavandann með offorsi, segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi. Of mikil áhersla sé lögð á að skilgreina vandann sem afbrota- og glæpamál.

Of mikil áhersla er lögð á að meðhöndla fíkniefnavandann sem afbrota- og glæpamál segir Þórarinn Tyrfingsson yfirlæknir á Vogi. Hægt sé að vinna markvisst gegn vandanum með forvarnar- og meðferðarstarfi.[ii]

Það ætti að vera hverjum það ljóst, sem kynnir sér þessi mál dýpra en bara með einhverju yfirborðslegu klóri, að núverandi ástand er dæmt til að mistakast – og skapar meiri vanda en það á að leysa. Bannárin bjuggu til glæpamenn, rétt eins og núverandi vímuefnastefna stjórnvalda er að gera, hvort sem það voru þeir sem sköpuðu eftirspurnina eða framboðið. Að halda því fram, að það sé ekki lögunum að kenna hvernig ástandið er, er eins og að segja það ekki skýjunum að kenna að það rigni.

Eftir ágætis greinargerð Landlæknis, er ekki lengur hægt að nota ad hominem rökleysuna. Annað hvort færir fólk rök fyrir sínu máli og ræðst á rök andstæðinganna – ekki persónurnar – eða það hreinlega bullar sig út úr umræðunni, með kjaftæði. Rök er hægt að rökræða – rökleysa verður aldrei neitt nema tilgangslaust þvaður, sem vel upplýst fólk nennir ekki einu sinni að eyða fleiri orðum í en einu.

Segðu…

Tilvísanir:
  1. Sigurður Grímsson, lögfræðingur og þýðandi: Fulltrúi á erlendu kommúnistaþingi; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1974 []
  2. RÚV – Fíkniefni: Ofuráhersla á refsingar []

08

07 2009

Það sem má ekki birta

Tveir blaðamenn Morgunblaðsins, ritstjóri Eyjunnar og Egill Helgason hafa fengið á sig kæru, fyrir að birta gögn af fundi í Glitni. Kærandi er Fjármálaeftirlitið, sem ég hélt að ætti að vera að hafa eftirlit með fjármálastofnunum en ekki fjölmiðlum. En, svona er Ísland öfugsnúið í dag.

Þar sem ég tel þessi gögn eiga fullkomið erindi við þjóðina alla hef ég ákveðið að birta myndir af skjalinu sem ég fann á vef Egils Helgasonar honum og öðrum blaðamönnum til stuðnings. Hvet ég aðra um að gera slíkt hið sama; látum ekki þagga niður í fólki sem þorir – hvaða skoðun við svo höfum á því fólki, persónulega eða pólitískt.

 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Hér má nálgast upprunalegu PDF skrána og sækja myndirnar:
PDF skráin: fundagerd300908.pdf
Myndirnar: fundagerd300908-jpg.zip

03

04 2009

Opið bréf til Landlæknis vegna kannabisumræðunnar – Kvörtun vegna umfjöllunar SÁÁ

Hr. Landlæknir
Matthías Halldórsson

Vegna fréttar á MBL.is af tölfræði og staðhæfingum SÁÁ varðandi meðferð á kannabisfíkn, langar mig til að koma á framfæri eftirfarandi athugasemdum:

1) Eins og lesa má á vef SÁÁ eru engar rannsóknir sem styðja þær fullyrðingar sem koma fram í þessari blaðagrein, heldur eru notaðar villandi og beinlínis rangar staðhæfingar um kannabis og tengsl þess við önnur harðari vímuefni.

2) Yfirlýsingar yfirlæknis Vogs, Þórarins Tyrfingssonar, eru alls ekki studdar neinum vísindalegum rökum, heldur notar hann einungis tölfræði SÁÁ/Vogs, sem, hið minnsta, er lituð fjárhagshagsmunum hans sjálfs – í versta falli til þess eins að blekkja fólk, sem treystir orðum hans vegna þess í hvaða stöðu hann er. Slíkt hlýtur að vera ámælisvert af hvaða lækni sem er, að misnota stöðu sína svo bersýnilega til að koma sínum pólitískum sjónarmiðum á framfæri.

3) Yfirlæknir SÁÁ sýnir mikla fordóma varðandi þá er vilja ræða þessi mál opinskátt, eins og heyra mátti í útvarpsviðtali við hann í þættinum Reykjavík síðdegis, þann 24. mars sl. Þar gerir yfirlæknirinn sig sekann um alvarlega fordóma og ósannindi. Engu að síður hafa læknasamtök, Landlæknisembættið og aðrir aðilar, sem mögulega gætu leiðrétt þessar rangfærslur ekki látið í sér heyra – fyrr en hugsanlega núna.

4) Þær rangfærslur sem yfirlæknir á Vogi kemst upp með í Kastljósviðtali, fimmtudaginn 26. marssl. eru slíkar, að ég get ekki annað en kvartað yfir þeim. Sú fyrri er: “Það er ekki hægt að nota kannabisreykingar sem lyfjameðferð,” Þetta er beinlínis rangt hjá Þórarni Tyrfingssyni. Kannabis hefur verið notað sem lyf í yfir 6.000 ár og er enn notað, t.a.m. í Hollandi, Belgíu, Kanada og 11 ríkjum Bandaríkja Norður Ameríku, einmitt í sinni náttúrulegri mynd – í landi, þar sem allar þessar ofsóknir hófust fyrir tæpri öld síðan. Einnig segir Þórarinn: “Það hefur því miður ekkert komið út úr þessu [tilraunum að búa til lyf úr kannabis] þó að menn hafi eytt miklum peningum í það og miklum tíma.”

Þetta er að sjálfsögðu ekki rétt. Þrenn kannabislyf eru til í dag ávísuð af læknum til sjúklinga:
Sativex (http://www.gwpharm.com/);
Marinol (http://www.solvaypharmaceuticals-us.com/newsroom/pressreleases/0,,14591-2-0,00.htm) og
Cesamet (http://www.revolutionhealth.com/drugs-treatments/cesamet).

Með fullyrðingum sínum hefur Þórarinn Tyrfingsson vegið að starfsheiðri lækna víðsvegar um heim. Gefið í skyn að þeir stundi skottulækningar, svo ekki sé minnst á að hann gerir lítið úr öllum þeim sjúklingum sem njóta góðs af kannabislyfjum í veikindum sínum. Er ekki orðið tímabært að ræða þessi mál af yfirvegun og með hliðsjón af vísindalegum rannsóknum? Hvernig er það; er það ekki réttur skilningur hjá mér, að allir læknar og stofnanir heyri undir Landlækni? Það er að segja ef þeir halda fram röngum staðreyndum, beri Landlæknisembættinu að leiðrétta þær opinberlega og jafnvel víta viðkomandi stofnun/lækni?

Með virðingu og vinsemd,
Ólafur Skorrdal
Kannabis.net

Rannsóknir og skýrslur:
Cannabis: Our Position for a Canadian Public Policy:
http://www.parl.gc.ca/common/Committee_SenActivity.asp?&Parl=37&Ses=1&comm_id=85&parl=37

The Berckley Foundation:
http://www.beckleyfoundation.org/science/research.html#cannabis

DrugWarFacts – Gateway Theory:
http://drugwarfacts.org/cms/?q=node/43

Afrit sent til:
Heilbrigðisnefndar Alþingis
Nefndarritara heilbrigðisnefndar Alþingis
Fréttastofa Ríkisútvarpsins
Síðdegisútvarp Rásar 2
Fréttastofa Stöðvar 2
Kastljós – RÚV
Morgunblaðið – Netútgáfa
Morgunblaðið – Ritstjórn
DV – Ritstjórn
Fréttablaðið – Ritstjórn
Visir.is – Ritstjórn
Aftaka – Netmiðill
Eyjan – Ritstjóri
Nei. – Ritstjóri
Leyniþjónustua Götunnar
AMX.is
Spegillinn – Rás 1
Smugan.is

Egill Helgason, Silfur Egils – RÚV/Eyjan
Sigmar Guðmundsson, Kastljós – RÚV – Sjónvarp
Friðrik Páll Jónsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Gunnar Gunnarsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Jón Guðni Kristjánsson, Spegillinn – RÚV – Rás 1
Freyr Eyjólfsson – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Linda Blöndal – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Guðmundur Pálsson – Síðdegisútvarp – RÚV – Rás 2
Björg Eva Erlendsdóttir – Smugan.is
Elías Jón Guðjónsson – Smugan.is

31

03 2009

Tvískinnungur Björns Jörundar

B: „Mér áskotnaðist miði[i] fyrir einn[ii].”

Ákærði: „Já heyrðu þú getur alveg rölt við, ég er hérna heima.”

B: „Ókei.”

Í símtali þeirra 13. maí er eftirfarandi samtal:

Ákærði: „Hæ, heyrðu var þetta ekki bara ás[iii]?”

B: „Eee, eða tveir[iv] ef hægt, það ekkert mál sko.”

Ákærði: „Það er bara tólf[v] sko. Bara tólf kall[vi].”

B: „Ertu kominn eða?”

Ákærði: „Nei, nei, það er bara tólf, tólfþúsundkall[vii]. Eruð þið tveir[viii], eða hvað?”

B: „Já, já.”

Þá segir í símtali þeirra 22. maí kl. 00.24:

B: „Hæ, ertu nokkuð á ferðinni ennþá[ix]?”

Ákærði: „Eee, ég gæti rúllað[x] á þig fljótlega.”

B: „Ég ætlaði að fá hinn þarna félagann[xi] .”

Ákærði: „Já.”

B: „Tvíburabróðirinn.”[xii]

Ákærði: „Ókei.”

Loks eru eftirfarandi samtöl hinn 30. maí, kl. 23.09:

Ákærði: „Ég hoppa bara, ég hoppa bara út[xiii] , hvað varstu að hugsa um?”

B: „Bara einar[xiv].”

Ákærði: „Ekki málið.”

B: „Heyrðu, ég labba þá niður, ég verð kominn eftir fimm mínútur.”

Og í símtali mínútu síðar heyrist:

Ákærði: „Hæ.”

B: „Hæ, heyrðu, höfum þá tvo[xv], því ég er með félaga mína og þeir klára þetta allt.”

Ákærði: „Ókei.”[xvi]

Þegar haft var samband við Björn neitaði hann að um fíkniefnaviðskipti[xvii] hefði verið að ræða. Hann sagðist hafa verið yfirheyrður vegna málsins, en taldi það ekki hafa neina eftirmála. Aðspurður sagðist hann þekkja Þorvarð án þess að vilja tilgreina með hvaða hætti þeir þekktust.

Idoldómari flæktur í kókaínmál – Vísir.is

Það þarf ekki að reyna að ljúga neinu að mér, til að segja mér hvað hér sé á ferðinni. Reyndar hefur f.v. yfirmaður fíkniefnadeildar lögreglunnar í Reykjavík, Ásgeir Karlsson, sagt að menn væru ekki dæmdir fyrir “neyslu” ólöglegra fíkniefna – en það er samt aðeins hálfur sannleikurinn.

Björn Jörundur var í kókaínparadís “Svedda tönn” á sínum tíma – Braselíu – þar sem hann var að þreyfa fyrir sér í “útgerð”, að mig minnir ég hafa séð í Séð og heyrt. Spurningin er bara hverskonar “útgerð” það hafi verið. Slíkt hlýtur að skipta einhverju máli, þegar svona mál koma upp.

Annars á það að vera hans eigið mál, hvort hann snortar kókaín, reykir “krakk” eða jónur; það á engum að koma slíkt við. Og auðvitað ætti Björn Jörundur að standa með sjálfum sér og viðurkenna slíka neyslu, ef hún er ekki að skaða hans líf á nokkurn máta. En svona nokkuð ætti ekki að koma fjölmiðlum þessa lands nokkuð víð, sérstaklega ekki þegar eigendur þeirra gera slíkt hið sama – og gera enn? Slíkt er bara hræsni í mínum huga.

Viðbót:

Nú hefur Björn Jörundur gengist við sannleikanum, og er það vel. En að segjast hafa gert mistök, er auðvitað bara aumingjaskapur í honum og lítið annað.
 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Miði er notað í staðinn fyrir seðil í fíknuefnaviðskiptum: “Ég er með miða fyrir þig” – “ég er með peninga/seðla fyrir þig” []
  2. Kókaín og amfetamín er oft selt í pokum – gæti átt við “einn poka”, eða aðeins verið dulkóðun til að halda áfram blekkingunni um “miðann”. []
  3. Ás – Eitt gramm, hvort sem um er að ræða kókaín eða amfetamín []
  4. Tvö grömm []
  5. Tólf – Gramm af kókaíni er á 15.000 krónur fyrir hina “smáu”, en þeir sem eru með fastaviðskipti, fá grammið á 10-13 þúsund krónur []
  6. Tólf kall – Þarf að útskýra þetta eitthvað nánar? []
  7. Sjá að ofan []
  8. Hér er verið að spyrja hvort um sé að ræða eitt eða tvö grömm []
  9. Eða: “Ertu enn með eitthvað á þér?” – Er hægt að nálgast efni hjá þér núna? []
  10. Er á bíl – hjól hans “rúlla” []
  11. Mjög líklega methamfetamín, án þess ég ætli að leggja meira út frá þessum orðum. []
  12. Eini “tvíburabróðir” kókaíns er “krakk”, en slíkt hefur lítið verið í sölu á Íslandi, amk. ekki eins og það þekkist í BNA. Mjög líklega methamfetamín, sem er reykt líkt og “krakk”. []
  13. Er líklega heima hjá sér, en er tilbúinn til að koma þessum viðskiptavini til bjargar. []
  14. “Einar” er eitt gramm, hvort sem það er kókaín eða amfetamín []
  15. Hér er bætt við fyrri pöntun; tvö grömm í staðin fyrir eitt. []
  16. Dómurinn í heild sinni []
  17. Hann getur neitað hverju sem hann vill – en mín þekking segir mér annað, byggt á þessum samskiptum hér að ofan []

18

02 2009

Aftaka hefur orðið

En enginn þorir að gagnrýna þetta athæfi vegna þess að það heitir ,,eiturlyfjaleit” og er þar af leiðandi réttlætt sem forvörn. Enginn þorir að standa í hárinu á yfirvöldum þegar þau framkvæma ,,framgang réttvísinnar”[i].

Jú – ég. En hver er ég? Bara “geðveikur dópisti”, með “ofsóknarbrjálæði” á hæsta stigi.

 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Voff Voff! Eiturlyfjahvolparnir eru komnir í skólana! – Aftaka.org []

Áskorun – 1.000.000 í verðlaun!

Hver sá, sem getur fundið álíka sögu[i][ii] um kannabisneyslu, þar sem neytandi hefur látist af völdum of mikillar kannabisneyslu[iii] – hvort sem það var af völdum þriðja aðila eða ekki – fær greiddar eina milljón (1.000.000,-) króna í verðlaun.

mbl-110209-lest_eftir_ad_hafa_drukkid_45_tekila_skot

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Lést eftir að hafa drukkið 45 tekíla skot – mbl.is []
  2. Neytandinn má hafa verið á öllum aldri, frá hvaða tímabili mannkynssögunnar sem er, svo fremi sé um að ræða skjalfestar staðreyndir sem hægt er að sannreyna á fræðilegan máta []
  3. Ekki er tekið mark á þeirri frétt, þar sem burðardýr lést vegna sprungins smokks í maga, sem fullur var af kannabisolíu []

11

02 2009

Fyrirspurn vegna fjármálaóreyðu

Þar sem ég get ekki hætt, sendir ég eftirfarandi fyrirspurnir til tveggja ráðuneyta í dag:

Dómsmálaráðuneytið, FS-090209.01

Kæru viðtakendur,

Mig langar að vita eftirfarandi, upplýsingar sem má finna í bókhaldi Dóms- og kirkjumálaráðuneytis Íslenska Ríkisins:

  1. Hver var samanlagður kostnaður Dómsmálaráðuneytisins vegna fíkniefnamála á síðasta uppgerðu fjárhagsári?(Undir “Samanlagður kostnaður” tilheyrir t.d. kostnaður vegna lögregluaðgerða, saksóknar, fangelsiskonstnaðar, eftirfylgni osfv.)
  2. Hvert er hlutfall Fíkniefnadeildar lögreglunnar, hvort sem deildin heyrir undir Ríkislögregustjóra eða önnur lögregluumdæmi landsins?
  3. Hver er hlutfall fanga, í gæslu Ríkisins á síðasta ári, sem dæmdir hafa verið vegna fíkniefnalöggjafar Ríkisins (lög nr. 65/1974); hver er fjöldi þeirra einstaklinga sem ákærðir hafa verið og gengist undir “dómsátt” vegna þessarar löggjafar frá árinu 1974 til ársins 2007.
  4. Hver er kostnaður Ríkisins, samanlagður á núvirði, af þeim er hafa gengist undir “dómssátt” en ekki hafa verið færðir fyrir dóm?
  5. Hversu margir hafa verið sakaðir um “fíkniefnamisferlil” saklausir, frá árinu 1974 til 2007?
  6. Hversu margir hafa verið sakaðir um “fíkniefnamisferli” og gengist undir “dómssátt” og/eða verið ákærðir og færðið fyrir dómstóla?

Þar sem þessar tölur hljóta að liggja fyrir hjá Dómsmálaráðuneytinu, óska ég eftir þessum upplýsingum, skv. lögum nr. 50/1996, með síðari breytingum.

Með virðingu og vinsemd,
Ólafur Skorrdal

—–

Eftirfarandi fyrirspurn sendi ég til Fjármálaráðuneytis Íslenska Ríksins:

Fjármálaráðuneytið, FS-090209.02

Kæru viðtakendur:

Ég hef send eftirfarandi erindi til Dóms- og kirkjumálaráðuneytis Ríkisins:

  • Sjá fyrirspurn að ofan [Afrituð og límd]

Eftirfarandi fyrirspurn sendi ég til Fjármálaráðuneytis Íslenska Ríksins og óska svara:

  1. Hver var samanlagður kostnaður Fjármálaráðuneytisins vegna fíkniefnamála á síðasta uppgerðu fjárhagsárim, sem greitt er til Dóms- og kirkjumálaráðuneytisins, samkvæmt lögum?
  2. Hver er kostnaður Fjármálaráðuneytisins, samkvæmt ársreikningum, vegna Fangelsismálastofnunnar?
  3. Hver er hlutfall þeirrar upphæðar vegna kosntaðar við fanga, vistaða vegna fíkniefnamála, skv. lögum nr. 65/1974?
  4. Hver er samanlagður kostnaður Ríkisins vegna fíkniefnamála (löggæslu, fangelsismála, Ríkissaksóknara og lögfræðikostnaður) frá árinu 1974 til 2007?

Þar sem þessar tölur hljóta að liggja fyrir hjá Fjármálaráðuneytinu, óska ég eftir þessum upplýsingum, skv. lögum nr. 50/1996, með síðari breytingum.

Með virðingu og vinsemd,

Ólafur Skorrdal

09

02 2009


Switch to our mobile site