wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘mótmæli’

Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is

»EN munum samt að fullt af eðlilegum Löggum ! EN HROTTARNIR ná að sverta störf Löggunnar og gera almenning fráhverfan enda ekki ásættanlegt með nokkru móti að hafa OFBELDISMENN í röðum Lögreglunnar ! þess þá heldur að steranotkunn sé “leyfð” þótt vissulega sé mjög ervitt að finna þá fyrr en jafnvel mörgum árum síðar (séu blóðsýni geymd) !«

via Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is.

Ha? Notar lögreglan ofbeldi? Nei, það getur ekki verið! Slíkt kemur aldrei í fréttunum!

08

08 2009

Trúi ekki lögreglunni – jenfo.blog.is

Jenný Anna Baldursdóttir

»Að fenginni reynslu vegna allra þeirra uppákoma sem hafa fylgt mótmælum eftir hrun þá hreinlega trúi ég því ekki þegar lögreglan segist hafa “þurft” að beita kylfum.«

via Trúi ekki lögreglunni – jenfo.blog.is.

Tek ég undir orð vinkonu minnar – og þá aðallega vegna þess að ég hef talað við fólk sem var á staðnum. Og þekki það ekki af nema einu góðu – og sannsögli.

08

08 2009

Eggert feldskeri og hústökufólkið – mbl.is

mbl.is-fannar-0809.02

“Hústökufólk hefur sest að í húsi við hlið verslunarinnar sem er ofarlega á Skólavörðustíg. Steinar Kristinn Sigurðsson einn þeirra segir húsið hafa staðið autt í langan tíma og verið beinagrind í annars fallegri götu. Hann segir fólkið hafa unnið að því að skipta út brotnum rúðum og hreinsa garðinn og húsið. Það eigi að setja upp fríbúð og gallerí í skúr í garðinum.

Hústökufólkið hefur dvalið endrum og sinnum í húsinu í fjórar vikur en í gær beindist athygli lögreglu að húsinu þegar skipt var um brotnar rúður og nágrannar kvörtuðu undan brothljóðum. Steinar segist ekki vilja átök við lögregluna. Fólkið féllst á um miðjan dag í dag að fara ekki inn í húsið fyrr en eigandinn svaraði því hvort það mætti hafast við í húsinu.”

via Eggert feldskeri og hústökufólkið – mbl.is.

Einmitt. Endilega að henda því út fyrir að gera upp kofann! Leifa þessu bara að drabbast niður og skemmast – í nafni græðginnar!

Það hefur verið málað þarna, lagað og dittað að – en það er auðvitað allt saman ólöglegt. Er ekki veröldin yndisleg?

07

08 2009

Spillingarbælið Ísland!

Bréf til Alþingis

Kæri þingheimur
Ef IceSafe samningurinn verður samþykktur á Alþingi, þýðir það hreint og klárt fullveldisafsal yfir auðlindum okkar – alveg sama hvernig þau ykkar sem reynið að spinna annað í kring um það segið. Slíkt varðar við 40. og 41.gr. laga nr. 33/1944 og 3.mgr. 91.gr. laga nr. 19/1940. Í raun, þar sem búið er að skrifa undir þetta fullveldisafsal, eru þessi lagaákvæði nú þegar í fullu gildi.

Kæri þingheimur

Ef IceSafe samningurinn verður samþykktur á Alþingi, þýðir það hreint og klárt fullveldisafsal yfir auðlindum okkar – alveg sama hvernig þau ykkar sem reynið að spinna annað í kring um það segið. Slíkt varðar við 40. og 41.gr. laga nr. 33/1944 og 3.mgr. 91.gr. laga nr. 19/1940. Í raun, þar sem búið er að skrifa undir þetta fullveldisafsal, eru þessi lagaákvæði nú þegar í fullu gildi.

Afsal á griðhelgi fullveldis

Bæði Tryggingasjóðurinn og Ísland samþykkja algerlega hvers konar málsókn gegn sér í sambandi við hvaða deiluefni, sem upp kunna að koma og hvers konar annað réttarúrræði gegn sér, þar á meðal aðför eða fjárnám, í hvaða eignum eða réttindum ( án tillits til hvaða nota þau eru ætluð) samkvæmt hvers konar úrskurði eða dómi.

Ef Tryggingasjóðurinn eða Ísland, eða hvers konar eigur eða réttindi þeirra, eiga rétt á griðhelgi í einhverri lögsögu frá málshöfðun eða birtingu annarra skjala í tengslum við hvaða deilu sem er, eða eiga rétt á hvers konar annarri griðhelgi frá lögsögu, lögsókn, dómi, fjárnámi, kyrrsetningu ( þótt það sé áður en dómur gengur til þess að tryggja aðför eða annað réttarúrræði) eða annars konar lögsókn, þá er hér með óafturkallanlega fallið frá griðhelgi á eins algeran hátt og lög viðkomandi lögsögu leyfa.

Bæði Tryggingasjóðurinn og Ísland lýsa því einnig óafturkallanlega yfir, að þau samþykki, að gera ekki kröfu um griðhelgi sjálfum sér til handa eða vegna eigna eða réttinda hvors um sig.[i]

Hver sá þingmaður, sem greiðir þessum samningi atkvæði sitt, mun því, skv. lögum, gerast landráðamaður og sekur um að hafa selt börnin okkar og barnabörn í ánauð. Ætlið þið VIRKILEGA að samþykkja þetta plagg, sem þið megið ekki sjá – að sögn Ríkisstjórnarinnar?

Í samtalinu kom fram að það hefur aldrei verið sett fram skilyrði af hálfu Hollendinga og Breta að ekki mætti birta samninginn.  ”Á nú að fara að kenna okkur um það líka, sagði viðkomandi.”  Það kom líka skýrt fram að hvorki samninganefnd Hollendinga né Breta vissi hverjar eignirnar væru sem kæmu á móti og viðkomandi efaðist stórlega um að íslenska samninganefndin vissi það heldur.[ii]

Ég treysti orðum Þórs og Birgittu mun meira en einum staf frá þeim Jóhönnu og Steingrími, sem eru alls ekki með hreina samvisku í þessu máli.

Standið með fullveldinu og fellið þennan samning. Það er á ykkar ábyrgð, að standa með þjóðinni – gegn slíkri kúgun sem þessari.

Íslandi allt!
Ólafur Skorrdal
skáld

Tilvísanir:
  1. Þýðing: Magnús Thoroddsen hrl. – fengin af bloggsvæði Ívars Pálssonar []
  2. Þór Saari – Þinghúsbréf 13 []

19

06 2009

17. júní? Til hvers?

Hæ, hó, jibbý jei og jibbýja-ei!
Það er kominn 17. júní!

Er það svo gleðilegt í dag? Á 65 ára afmælisdegi lýðveldisins? Í alvöru – hverjum finnst það? Kannski forsetanum, því hann er puntudúkka, sem treður sér fram á sjónarsviðið sérstaklega til að minna okkur á að við höfum kosið hann (reyndar bara einu sinni, en hverjum er ekki sama um það, í lýðræðisríki?): Áramót og 17. júní er hrisst af honum rykið, hann klæddur í sitt fína púss og treðst gegnum umferðina, til að vera með okkur almúganum. Nei – það er bara á 17. júní. Og við eigum að vera sátt.

Þjóðin er sundruð og sár – og “sameiningartákn” hennar, hefur gert lítið til að sameina þjóðina. Eiginlega verið meira í því að sundra henni – nú, eða bara þagað og gert ekki neitt. Það á tímum mestu ógnar við sjálfstæði okkar og framtíð sem við nokkru sinni höfum staðið fyrir á öllum lýðveldistímanum. Kannski hann sé bara á skíðum eftir allt saman?

Bankahrun og Icesafe – arðrán heillar þjóðar stendur yfir, og hvorki er hægt að treysta á að eina lýðræðisembætti þjóðarinnar standi með henni, né heldur hægt að treysta á að kjörnir fulltrúar standi við orð af því sem þeir segja (sem hefur í raun aldrei verið hægt, en það er önnur saga). Samþykkja á skuldafangelsi kynslóðanna, og það meira að segja án þess að kjörnir fulltrúar fái að sjá samninginn.

Við lifum á tímum geðveiki og gerræðis. Aldrei í stuttri sögu okkar lýðveldis hefur þjóðin staðið frami fyrir slíkum afarkostum sem henni eru nú settir – og það af “vinaþjóðum” okkar, og okkar eigin Ríkisstjórn. Samfélagsfriðurinn er í raun rofinn – og það af okkar eigin stjórn.

Aldrei þurftum við að berjast fyrir sjálfstæði okkar með blóði, aðeins með klækjum og bolabrögðum. Kannski þess vegna höfum við ekki kunnað að bera virðingu fyrir sjálfstæði okkar – ekki kunnað að fara með lýðræðið, sem við í raun fengum sent í pósti frá Kaupmannahöfn. Og það með tárum Kristjáns IX sem innsigli. Kannski þau tár séu núna að innsigla okkar ófarir – kannski eigum við þetta skilið, fyrir okkar falska frelsi?

Ef við viljum byggja upp nýtt samfélag í þessu landi, byggt á lýðræði, réttlæti og sanngirni, þurfum við – að mínu mati – að berjast fyrir okkar sjálfstæði og frelsi. Annars mun hér ekkert breytast, og landeigendurnir halda áfram að eiga stjórnmálamenn, sem munu halda áfram að ljúga og blekkja okkur með fögrum orðum, sem ekkert er að marka. Kannski er kominn tími á raunverulega byltingu í þessu landi, þótt ekki væri nema til að hreinsa út úr samfélaginu þá sem hafa komið okkur í það öngstræti sem þjóðin upplifir nú.

Dagurinn í dag er engin tími til fögnuðar, heldur sorgardagur, sem minnir okkur á að við höfum farið illa með það sem okkur var gefið – og kennir okkur vonandi að fara betur með næsta lýðveldi, hvort og hvenær það verður stofnað. Ég vona fyrr en síðar.

Skemmtið ykkur vel…

17

06 2009

Húsið er okkar!

Vér mótmælum!

Frú Dómsmálaráðherra,
Ragna Árnadóttir

Ég mótmæli hér með HARÐLEGA aðgerðum lögreglunnar við rýmingu húss við Vatnsstíg í Reykjavík í morgun og set alla ábyrgð á hörku lögreglunnar á þínar herðar, þar sem þú ert yfirmaður alls lögregluliðs í landinu um þessar mundir. Lít ég svo á, að þú ætlir að halda áfram verki kúgunnar og ógnarstjórnar forvera þíns og mun ekki á neinn hátt gefa þér neinn afslátt á gagnrýni héðan í frá. Annað hvort ert þú vanhæf sem dómsmálaráðherra, vegna vanþekkingar og reynsluleysis, eða vegna þess að þú vilt viðhalda þeirri ógnarstjórn sem forvera þínum var svo annt um. Allt fyrir auðvaldið – skítt með réttlætið! Ættir kannski að vera að eltast við ALVÖRU glæpamenn þessa lands, sem hafa komði þessari þjóð á heljarþröm, í stað þess að eltast bara við samloku- og tímaritaþjófa. Kannski málið sé þér bara ofvaxið?

Fordæmi ég hér með harðlega þessi vinnubrögð og andvaraleysi þitt í að takast á við slík vinnubrögð eins og þau sem þjóðin hefur fengið að upplifa nú í dag.

Ólafur Skorrdal
skáld

15

04 2009

Lögreglan sýnir sitt rétta andlit

Lögreglan er ekki lengur þjónar lýðræðisins, heldur kúgarar[i][ii] valdhafanna. Þarf að hafa fleiri orð um það?

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

 

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Tilvísanir:
  1. Sjá: Ofbeldisfullir lýðræðisþjónar – RÚV.is []
  2. Sjá: Lúðrarnir á skilorði – Vísir.is []

11

02 2009

Forsetinn og Foringinn

Forseti - komma 

Forseti komma

Nú hafa erkióvinirnir tekið höndum saman[i] við að troða því litla – örlitla – mannorði[ii] sem þjóð okkar hafði, gersamlega í svaðið. Þeir skiptast á að koma þjóð okkar illa með kjaftinum á sér[iii] , hvort sem það er viljandi eða óviljaverk. Að við skulum hafa þessa kóna í forsvari fyrir þjóðina, er með ólíkindum. Hvað er að íslendingum?

Bubbi Kóngur

Bubbi Kóngur

Alveg ótrúlegt að fylgjast með þessum tveimur erkióvinum sameinast í því að traðka á þeirrar þjóðar, sem hefur komið þeim á þann stall sem þeir halda sig á. Sorglegt að við skulum hafa mulið undir þessa landráðamenn – þá ætti að koma fyrir í klefum næstu 16 árin; þeir eru orðnir hinir mestu glæpamenn íslandssögunnar – hver ætlar að neita því?[iv]

Tilvísanir:
  1. Davíð hættir ekki – Eyjan.is []
  2. Forsetinn: Við borgum ekki – Eyjan.is []
  3. Forsetinn grefur undan mannorði landsins – Eyjan.is []
  4. Myndir fengnar af Eyjan.is []

11

02 2009

Ótti og afbökun

Mér barst eftirfarandi texti í Facebook hólfið mitt, og fann mig knútinn til að birta það hérna. Persónulega finnst mér það eiga erindi við mína lesendur – og ég vona að flestir þeirra séu mér sammála. Þessari baráttu er hvergi lokið; stærstu sigrarnir eru eftir. Látum ekki okkar eftir liggja; tökum virkan þátt í að móta framtíðina að réttlátara og betra samfélagi fyrir afkomendur okkar, en ekki hið sjálfmiðaða græðgissamfélag, sem klappað hefur verið upp gegnum árin af lýðskrumurum, falsspámönnum og arðræningjum. Lifum í voninni – byggjum bjartari framtíð.

Áróðursvél Sjálfstæðisflokksins á yfirsnúningi

Það hefur ekki farið fram hjá neinum sem fylgist með fréttum að áróðursvél Sjálfstæðisflokksins var formlega ræst tveim mínútum eftir stjórnarslit þegar að Geir hvað upp þann dóm að Samfylkingin væri í tætlum. Flestir hafa eflaust átt von á að vélin færi í gang og mundi malla á sambærilegum snúning og þekkst hefur en sennilega áttu fæstir von á hversu hatrammlega henni er teflt fram. 

Hæfileika Sjálfstæðisflokksins til þess að endurskrifa söguna sér í hag þekkja allir. Þar fer saman sannleikur í bland við lygi sem skilar svo tilætlaðri niðurstöðu. Er þessi aðferð vel þekkt út um allan heim og hefur viðgengist í þúsundir ára. 

En hversvegna er vélin á svo miklum snúning eins og raun ber vitni? Ástæðan er afar einföld. Sjálfstæðisflokkurinn sér fram á að missa öll völd í samfélagi sem þeir hafa meira og minna stýrt í 50 ár. Það er þessi valdamissir sem þeir geta ekki sætt sig við. Sjálfstæðisflokkurinn hefur komið sér upp valdmannakerfi sem er vel dreift í allar stofnanir þjóðfélagsins, svo vel að jafnvel eftir að þeir missa völdin formlega þá haldi þeir hluta þeirra á bakvið tjöldin. Þetta hefur berlega komið í ljós með opinberum ummælum embættismanna sem hliðhollir eru sínum flokki. Valdhroka Sjálfstæðismanna virðast ekki vera nein takmörk sett. 

Með hroka og yfirlæti tjá þeir lýðnum að þeir viti best hvað hentar fólkinu í landinu. Ofurtrú þeirra á eigin ágæti dylst engum. Þrátt fyrir að Ísland sé tæknilega gjaldþrota halda þeir áfram og boða meira af því sama. Orkulindir og sjávarútvegur okkar eru þau hálmstrá sem þeir halda í og segja að sé grunnstoðir sem munu ná okkur út úr núverandi aðstæðum með þeirra hjálp. Þeir segja hinsvegar ekkert um það að þessar tvær greinar eru í raun tæknilega gjaldþrota og geta ekki skapað nokkrar tekjur næstu 10 árin. Grunnstoðirnar eru það yfirveðsettar að það er óljóst hver á þær í dag þ.e. Íslendingar eða útlendingar. 

Eina mögulega mótvægið við þessar gjaldþrota hugmyndafræði er búsáhaldabyltingin. Hefur hún nú tekið sér frí frá mótmælum til þess að gefa núverandi valdhöfum möguleika á að leiðrétta stöðuna. Það er hinsvegar algjörlega óljóst hvort að það náist. Sá kostur sem fólk virðist binda hvað mestar vonir við er Stjórnlagaþing en Sjálfstæðisflokkurinn er á móti þeim hugmyndum að öllu leiti og munu þeir beita sér hatrammlega gegn þeim. 

Það er því skylda allra áhugamanna um hávær búsáhöld að mótmæla kröftuglega við landsfund Sjálfstæðisflokksins þann 26. – 29. mars í Laugardalshöll.

Leyniþjónusta Götunnar.

06

02 2009


Switch to our mobile site