wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘réttlæti’

Lýðræðisrúinn ráðherra?

Var hann ekki kosinn í almennum þingkosningum? Býr hann ekki í sama samfélagi og ég, þar sem samkeppni er ekki litin hornauga, heldur samþykkt sem rekstrargrunnur – þótt svo farið hafi lítið fyrir slíkri “samkeppni” síðustu áratugina? Á hvaða öld er Jón Bjarnason “ráðherra” staddur? Er sú öld ekki liðin – fyrir löngu? Það er sem mig minnir það, en undanfarið hefur mér ég frekar vera staddur í samfélagi á sýru, frekar en í alvöru samfélagi fólks sem stefna sínu lífi á framtíðina…

Vísir.is:

visir-2009-10-26-radherra_hvatti_til_brota_a_samkeppnislogum

Smellið til að stækka

Lög nr. 44/2005 – 11.gr:
Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.
Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:
a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.
Lög nr. 44/2005 – 12.gr:
Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.
Lög nr. 44/2005 – 33.gr:
Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.
http://www.althingi.is/lagas/nuna/2005044.html

Lög nr. 44/2005 – 11.gr:

Misnotkun eins eða fleiri fyrirtækja á markaðsráðandi stöðu er bönnuð.

Misnotkun skv. 1. mgr. getur m.a. falist í því að:

  • a. beint eða óbeint sé krafist ósanngjarns kaup- eða söluverðs eða aðrir ósanngjarnir viðskiptaskilmálar settir,
  • b. settar séu takmarkanir á framleiðslu, markaði eða tækniþróun, neytendum til tjóns,
  • c. viðskiptaaðilum sé mismunað með ólíkum skilmálum í sams konar viðskiptum og samkeppnisstaða þeirra þannig veikt,
  • d. sett sé það skilyrði fyrir samningagerð að hinir viðsemjendurnir taki á sig viðbótarskuldbindingar sem tengjast ekki efni samninganna, hvorki í eðli sínu né samkvæmt viðskiptavenju.

Lög nr. 44/2005 – 12.gr:

Samtökum fyrirtækja er óheimilt að ákveða samkeppnishömlur eða hvetja til hindrana sem bannaðar eru samkvæmt lögum þessum eða brjóta í bága við ákvarðanir skv. 16.–18.

Lög nr. 44/2005 – 33.gr:

Samningar, sem brjóta í bága við bannákvæði laga þessara, eru ógildir.

Silfur Egils:

Smellið til að stækka - Mæli með lestri athugasemda...

Smellið til að stækka - Mæli með lestri athugasemda...

RÚV.is:

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Og svo kemur rúsínan í pylsuendanum:

Vísir.is:

Smellið til að stækka

Smellið til að stækka

Stjórnarskrá Íslands:

Lög nr. 33/1944 – 65.gr:

Allir skulu vera jafnir fyrir lögum og njóta mannréttinda án tillits til kynferðis, trúarbragða, skoðana, þjóðernisuppruna, kynþáttar, litarháttar, efnahags, ætternis og stöðu að öðru leyti.

Er ekki eitthvað bogið við framsögu þessa steingerfings? Viljum við, í okkar samfélagi í dag, virkilega hafa slíkan einstakling í Ríkisstjórn? Í alvöru?

08

10 2009

Spilling: Glæpamannasamfélagið Ísland

Mig minnir að ég hafi reynt að segja þetta í mörg ár, en fólk vildi ekki vita það heldur hélt bara áfram að lifa í sínum draumaheimi, þar sem frelsi er þrældómur. Nú hefur Jónas reynt að segja fólki það í nokkurn tíma – kannski þau fari að segja okkur næst að stríð sé friður? Eða kannski hefur því verið logið að okkur um nokkuð langan tíma?

Og fyrst það á að skera niður menntakerfið, þá förum við eflaust að heyra möntruna um að fáfræði sé styrkur?

Vel tengdur glæpalýður

Erlendir ráðamenn efast um, að Ísland geri upp sakirnar við glæpalýðinn, sem rústaði fjárhag og áliti landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiksnefndin fræga stundi kattarþvott. Taka eftir, að enginn glæpamaður hefur verið settur inn, ekki einu sinni yfirmenn IceSave og Landsbankans. Ísland er talið vera eins konar mafíuríki, þar sem vel tengdur glæpalýður sleppur billega frá ofur-syndum sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur formlega við völd. En hann ræður enn embættum og dómstólum og lögreglu og skilanefndum og sannleiksnefnd. Pólitíkin er máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri stjórn.

Jónas.is

War is Peace; Freedom is Slavery; Ignorance is Strength.

1984 / George Orwell

28

09 2009

NewScientist: Betri veröld – lögleiðum vímuefni

Far from protecting us and our children, the war on drugs is making the world a much more dangerous place.

SO FAR this year, about 4000 people have died in Mexico’s drugs war – a horrifying toll. If only a good fairy could wave a magic wand and make all illegal drugs disappear, the world would be a better place.

Dream on. Recreational drug use is as old as humanity, and has not been stopped by the most draconian laws. Given that drugs are here to stay, how do we limit the harm they do?

The evidence suggests most of the problems stem not from drugs themselves, but from the fact that they are illegal. The obvious answer, then, is to make them legal.

http://www.newscientist.com/article/mg20327251.100-better-world-legalise-drugs.html

12

09 2009

Vísir – Vilja að bresk stjórnvöld biðjist afsökunar á meðferð Turings

Alan Turing. MYND/National Portrait Gallery

»Tæplega 20.000 manns hafa skrifað undir áskorun á vefnum til breskra stjórnvalda þar sem farið er fram á afsökunarbeiðni vegna meðferðar þeirra á stærðfræðingnum og dulmálssérfræðingnum Alan Turing. Turing var samkynhneigður og var árið 1952 látinn gangast undir lyfjagjöf til að draga úr kynhvöt en samkynhneigð var bönnuð með breskum lögum á þeim tíma. Hann fyrirfór sér tveimur árum síðar. Turing smíðaði dulmálsvélina Bombe í síðari heimsstyrjöldinni en hún gat leyst úr dulmáli Enigma-vélarinnar þýsku sem löngum var Bandamönnum þyrnir í augum.«

af Vísir – Vilja að bresk stjórnvöld biðjist afsökunar á meðferð Turings.

Þó það nú væri!

02

09 2009

www.jonas.is – Spurt um rafmagnsstól

»Hvað á að gera við ofbeldismenn, sem ítrekað ráðast á fólk og limlesta? Eru ekki fyrr sloppnir úr varðhaldi en þeir byrja aftur. Ekki er hægt að þola svona síbrot í siðuðu landi. Sálfræðikukl dugar ekki á þá. Bandaríkjamenn losa sig við síbrotamenn með rafmagnsstól og skyldum tólum. Eigum við að taka upp rafmagnsstól? Vitum, að hann dregur ekki úr afbrotum og bætir ekki neinn. En hann losar þjóðfélagið við eitt vandamál í næstum hvert sinn, sem hann er notaður. Er eitthvað annað til í stöðunni? Er hægt að taka af þeim passann og sturta þeim úr landi? Vill einhver taka við þeim gegn gjaldi?«

af www.jonas.is.

Eru dauðarefsingar ekki bannaðar í Evrópu? Það er eins og mig minnir það…

1.gr. 1.mgr. lið 6, laga nr. 62/1994:

Samningsviðauka nr. 13 frá 3. maí 2002 við samninginn um verndun mannréttinda og mannfrelsis, varðandi afnám dauðarefsinga í öllum tilvikum.

31

08 2009

Opið bréf til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)
Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:
1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
2. Hvert er verðbréfasafn LV
3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
4. Hver er gjaldeyriseign LV
5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.
Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.
Ólafur Skorrdal
Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

Til þeirra er málið varðar. (opið bref til sjóðsstjórnar Lífeyrissjóðs Verslunarmanna)

Þar sem ég er sjóðsfélagi í Lífeyrissjóði Verslunarmanna, langar mig að fá upplýsingar um eftirfarandi:

  1. Hverjir eru gjaldeyrissamningar LV
  2. Hvert er verðbréfasafn LV
  3. Hvert er tap LV vegna bankahruns síðasta árs
  4. Hver er gjaldeyriseign LV
  5. Hvað hefur LV tapað miklu á falli bankanna sl. haust.

Krefst ég þess, sem sjóðsfélagi frá 1983, að fá upplýsingar þessar hið fyrsta.

Ólafur Skorrdal

Bréf þetta – og svar vegna þess – verður birt á skorrdal.is og dreift til fjölmiðla.

22

08 2009

Icesave utanríkismálanefndar álit mitt – birgitta.blog.is

Birgitta Jónsdóttir

»Þetta er nánast orðið úrelt en þetta álit ritaði ég um miðjan síðasta mánuð en það var tekið úr utanríkismálanefnd allt of snemma að mínu mati – ég vil taka það fram að ég mun ekki undir neinum kringumstæðum geta samþykkt meirihlutaálit fjárlaganefndar nema búið sé að kanna á trúverðugan hátt hvort að þessir fyrirvarar verða virtir í breskum og hollenskum dómsstólum. Vonandi kemst það á hreint í dag – en erfiðlega gengur að fá meirihlutann til þessara verka. Þ.e.a.s. að fá þetta staðfest. Ítrekað hefur verið beðið um það.«

af Birgitta Jónsdóttir – birgitta.blog.is.

21

08 2009

Viðskiptafulltrúi landsins axlar ekki… – thorrialmennings.blog.is

Þorri Almennings

»Það er hálf dapurlegt að það þurfi íslenska meri til að ná fram einhverju réttlæti. En við getum huggað okkur við að einhversstaðar er til eitthvað rétlæti þótt það sé þessari siðblindu þjóð gjörsamlega ókunnugt. Ein ástæðan gæti verið óréttlætisiðnaðurinn sem hér er rekinn undir nafni dóms og ,,réttar”kerfis. Ásamt forheimskun og öfugsnúningi einmiðlanna eins og síðasta Reykjavíkurbréf Mbl. vitnar um. Almennan ótta við kjarna allra mála sem er þjóðarhefð hinnar þrasgjörnu þjóðar.«

með Viðskiptafulltrúi landsins axlar ekki… – thorrialmennings.blog.is.

21

08 2009

DV.is – Frétt – Fangamyndir af útrásarvíkingum

Mynd: DV.is - Sérstakur saksóknari

»Ljósmyndir eru teknar af þeim sem hafa réttarstöðu grunaðra í rannsóknum sérstaks saksóknara efnahagshrunsins. Myndunum svipar til fangamyndanna sem sumir kannast við úr bíómyndum. Myndirnar eru teknar í höfuðstöðvum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á Hverfisgötu. Hinir grunuðu eru ósáttir við myndatökurnar, meðal annars Magnús Ármann fjárfestir.«

via DV.is – Frétt – Fangamyndir af útrásarvíkingum.

Þó það nú væri! Myndir eru víst teknar af fólki af minna tilefni! Og hvað með þótt svo þeir kvarti? Ekki þurfa þeir að borga sitt eigið dóppartý – svo mikið er víst!

12

08 2009

Að skjóta sendiboðann … – doggpals.blog.is

dogg_palsdottir_logfr_xd

»Konan segir að gögn, málstað hennar til framdráttar, hafi ekki verið lögð fram. Um það veit ég auðvitað ekki. En hitt veit ég að fyrir Hæstarétt voru t.d. lögð fram ný gögn, m.a. sálfræðiskýrsla frá skólasálfræðingi. Sú skýrsla gerði lítið til að styðja fullyrðingu konunnar um að börnin hefðu aðlagast hér með þeim hætti að ekki mætti ákveða að hún skyldi fara með þá aftur til Bandaríkjanna til að þar yrði leyst úr forsjárdeilu foreldranna.

Ég hef áður í bloggi um þetta mál bent á að um mál af þessu tagi gilda tveir alþjóðasamningar, svokallaður Haagsamningur, sem átti við í þessu mál, og svokallaður Evrópusamningur. Báða samningana höfum við lögfest með lögum nr. 160/1995.«

via Að skjóta sendiboðann … – doggpals.blog.is.

Ætla ekki að segja meira…

12

08 2009

www.jonas.is – Vanmetin þjóðarheift

»Erfiðleikar IceSave samningsins í almenningsálitinu stafa af, að þjóðin er bálreið út af öðru. Hún skilur ekki, að enginn skuli enn vera dreginn fyrir dómara vegna bankahrunsins. Hún hefur enga trú á leyninefndum á borð við sannleiksnefnd Alþingis. Hún hefur séð lánabók Kaupþings á blogginu. Hún lætur ekki þvinga IceSave ofan í kokið á sér meðan Björgólfur Thor gengur laus, meðan Hannes Smárason, Ólafur Ólafsson og Wernersbræður ganga lausir. Stóra skyssan hjá stjórnvöldum var að skilyrða ekki opnar yfirheyrslur sannleiksnefndarinnar. Það var öryggisloki til að tempra heift þjóðarinnar.«

via www.jonas.is.

11

08 2009


Switch to our mobile site