wordpress visitor counter

Stikkorða færslur ‘samstaða’

Lögregluofbeldi – Myndir og myndband

Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is

»EN munum samt að fullt af eðlilegum Löggum ! EN HROTTARNIR ná að sverta störf Löggunnar og gera almenning fráhverfan enda ekki ásættanlegt með nokkru móti að hafa OFBELDISMENN í röðum Lögreglunnar ! þess þá heldur að steranotkunn sé “leyfð” þótt vissulega sé mjög ervitt að finna þá fyrr en jafnvel mörgum árum síðar (séu blóðsýni geymd) !«

via Mynband ! Löggan að reyna að vernda sýna sérsveita hrotta ! – gretare.blog.is.

Ha? Notar lögreglan ofbeldi? Nei, það getur ekki verið! Slíkt kemur aldrei í fréttunum!

08

08 2009

Erum við menn eða mýs? Einveldi AGS á Íslandi – marinogn.blog.is

»Við þurfum að rísa upp gegn kúgurum okkar, sem í þessu tilfelli snýst um Icesave skuldbindingarnar.  Þetta snýst nefnilega allt um það að AGS er hér sem hinn harðasti innheimtulögfræðingur að tryggja að ekkert verði gefið eftir.  Og það er alveg sama hversu fáránlegar kröfur eru settar fram af hálfu hinna svo kölluðu viðsemjenda okkar, við eigum bara að lúffa.  Ætlar Alþingi Íslendinga í raun og veru að láta undan hótunum landstjóra AGS á Íslandi eða ætlar það að sýna sannan manndóm og hafna Icesave samningnum.  Eða verða það 63 mýslur sem munu trítla um gólf Alþingishússins?«

via Erum við menn eða mýs? Einveldi AGS á Íslandi – marinogn.blog.is.

“Við”* erum mýs.

*  ”Við” í þessu samhengi á við Ríkisstjórnina – og svo þann almenning sem gerir ekkert í því að berjast fyrir framtíð barna sinna.

08

08 2009

Eggert feldskeri og hústökufólkið – mbl.is

mbl.is-fannar-0809.02

“Hústökufólk hefur sest að í húsi við hlið verslunarinnar sem er ofarlega á Skólavörðustíg. Steinar Kristinn Sigurðsson einn þeirra segir húsið hafa staðið autt í langan tíma og verið beinagrind í annars fallegri götu. Hann segir fólkið hafa unnið að því að skipta út brotnum rúðum og hreinsa garðinn og húsið. Það eigi að setja upp fríbúð og gallerí í skúr í garðinum.

Hústökufólkið hefur dvalið endrum og sinnum í húsinu í fjórar vikur en í gær beindist athygli lögreglu að húsinu þegar skipt var um brotnar rúður og nágrannar kvörtuðu undan brothljóðum. Steinar segist ekki vilja átök við lögregluna. Fólkið féllst á um miðjan dag í dag að fara ekki inn í húsið fyrr en eigandinn svaraði því hvort það mætti hafast við í húsinu.”

via Eggert feldskeri og hústökufólkið – mbl.is.

Einmitt. Endilega að henda því út fyrir að gera upp kofann! Leifa þessu bara að drabbast niður og skemmast – í nafni græðginnar!

Það hefur verið málað þarna, lagað og dittað að – en það er auðvitað allt saman ólöglegt. Er ekki veröldin yndisleg?

07

08 2009

Nóg komið af rugli – jenfo.blog.is

Jenný Anna Baldursdóttir

“Þegar maður les um þennan ævintýralega verðmun á grænmeti eftir verslunum allt upp í 800% þá veit ég ekki hvað skal halda.

Eða kannski þarf maður ekkert að halda eitt né neitt það dettur einfaldlega engum í hug annarsstaðar en hér trúi ég að verðleggja sig til gjaldþrots.

Því ég ætla rétt að vona að fólk (húsmæður aðallega) haldi ekki áfram að versla í stórmörkuðum þar sem verðlagið á einu kílói af gulrótum gæti nægt fyrir hálfu gróðurhúsi eða svo.”

via Nóg komið af rugli – jenfo.blog.is.

Verðvitund okkar íslendinga hefur aldrei verið upp á marga fiska. Og að berjast saman gegn verðhækkunum, er nærri óþekkt. Man ég eftir einum mótmælum vegna verðhækkanna, en þau áttu sér stað 1997 – og það hafði ekkert með matvæli að gera!

Er ekki tími til kominn að standa saman – þó ekki væri nema fyrir börnin?

07

08 2009

Vísir – Hústökumenn komnir með nýtt heimili

“Þegar Vísir hafði samband við lögreglunar hafði hún ekki heyrt af hústökunni en hugðist kanna málið nánar.”

Vísir – Hústökumenn komnir með nýtt heimili.

Það er skrítið, því ég veit ekki betur en lögreglan hafi komið þarna um síðustu helgi, verið með yfirgang og hroka.

Einnig veit ég til þess að eigandinn viti af veru fólksins í húsinu, og hefur meira að segja komið og kíkt á hvað væri um að vera.

Ég held að svona “blaðamenn” ættu að vinna vinnuna sína, í stað þess að koma með svona áróður og kjaftæði – og bera á borð fyrir fólk. Enda er enginn skráður fyrir þessari færslu, svo eflaust er það aumingi og gunga sem setur þennan viðbjóð á vefinn.

07

08 2009

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”

“Ég hef ekki verið í neinum samskiptum við þetta ágæta fólk eftir þennan minnisverða dag, þegar þau tóku upp á því að ganga á bak orða sinna. Ég sé ekki ástæðu til að skiptast á orðum við fólk sem ekki er mark takandi á,”

Eyjan » Þráinn ræðir ekki við samflokksmenn – “Eyði ekki orðum í fólk sem ekki er mark takandi á”.

Ætli hann gangi til liðs við Framsóknarflokkinn? Það hafa margir haldið því fram gegnum tíðina. Mér er hlýtt til Þráins – en ég skil ekki hans afstöðu í þessum málum.

06

08 2009

DV.is – Blogg – Hefnd Björgólfs

Svarthöfði er alltaf beittur:

“Ef Landsbankinn hefði verið loftfar hefði orðið Hindenburg-slys hér á landi. Ef hann hefði verið skip hefði hann farið sömu leið og Titanic. Eða Hafskip. Sem geimferja væri hann Challenger og sem kjarnorkuver Chernobyl. Einhvern veginn tókst Björgólfi, þvert gegn öllum líkum, að hámarka tjónið sem hann gat valdið. Þegar bankinn hans stefndi í þrot gaf hann í, með því að soga Icesave-peninga úr vösum Breta og Hollendinga, áður en hann skall til jarðar. Þetta olli því að heil þjóð þurfti í nauðarsamninga sem standa í vegi fyrir endurreisn efnahagslífsins.”

DV.is – Blogg – Hefnd Björgólfs.

06

08 2009

Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu – mbl.is

Var þetta ekki allt séð fyrir? Ef ekki; er hæft fólk þarna í vinnu hjá okkur?

Ég verð að spyrja mig, hvort ég væri sáttur með svona aðgerð, ef ég ætti fyrirtækið og hefði púls á samfélaginu.

Stjórn Kaupþings harmar skaðann af lögbanninu – mbl.is.

06

08 2009

Byltingin og börnin

Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.

Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.

Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?

Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.

Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…

Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.

Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.

Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?

Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.

Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.

Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.

Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!

Sjá einnig:

Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…

Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…

Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009

Húsið er okkar!



Switch to our mobile site