Halldór: Skuldastaða heimilianna
Hefur þetta ekki verið svona frá stofnun lýðveldisins? Ég er ekki gamall en ég held að ekkert lýsi baráttu okkar samfélags, frá miðri síðustu öld til dagsins í dag, meira en þessi mynd Halldórs hjá Morgunblaðinu:
Hefur þetta ekki verið svona frá stofnun lýðveldisins? Ég er ekki gamall en ég held að ekkert lýsi baráttu okkar samfélags, frá miðri síðustu öld til dagsins í dag, meira en þessi mynd Halldórs hjá Morgunblaðinu:
Mig minnir að ég hafi reynt að segja þetta í mörg ár, en fólk vildi ekki vita það heldur hélt bara áfram að lifa í sínum draumaheimi, þar sem frelsi er þrældómur. Nú hefur Jónas reynt að segja fólki það í nokkurn tíma – kannski þau fari að segja okkur næst að stríð sé friður? Eða kannski hefur því verið logið að okkur um nokkuð langan tíma?
Og fyrst það á að skera niður menntakerfið, þá förum við eflaust að heyra möntruna um að fáfræði sé styrkur?
Erlendir ráðamenn efast um, að Ísland geri upp sakirnar við glæpalýðinn, sem rústaði fjárhag og áliti landsins. Gera ráð fyrir, að sannleiksnefndin fræga stundi kattarþvott. Taka eftir, að enginn glæpamaður hefur verið settur inn, ekki einu sinni yfirmenn IceSave og Landsbankans. Ísland er talið vera eins konar mafíuríki, þar sem vel tengdur glæpalýður sleppur billega frá ofur-syndum sínum. Samt er Sjálfstæðisflokkurinn ekki lengur formlega við völd. En hann ræður enn embættum og dómstólum og lögreglu og skilanefndum og sannleiksnefnd. Pólitíkin er máttvana, jafnvel þótt hér sé vinstri stjórn.
War is Peace; Freedom is Slavery; Ignorance is Strength.
Af hverju finnst mér eitthvað rangt við þessar aðgerður “borgarstjóra” og Óskars? Því finn ég plastlykt af þessum gjörningum? Er það bara ég – eða er þetta sviðsett?
Vísir – Borgarstjórn ber út menningaverðmæti.
»„Því miður var niðurstaðan frekar rýr og neituðu sumir aðilar að veita upplýsingar um það hvaða fyrirtæki hefðu verið yfirtekin. Þau báru við þagnarskylduákvæðum laga um fjármálafyrirtæki. Ráðuneytið hefur því ekki fullnægjandi upplýsingar til að svara fyrirspurninni,” sagði Gylfi.«
via Vísir – Fréttir – Innlent.
Auðvitað ekki! Þetta kemur “okkur” ekki við! “VIД eigum bara að borga og ÞEGJA!
»He said Britain had provided financial assistance to Iran’s reformists to undermine the hardline clerical regime during June’s disputed presidential elections.
Hossein Rassam, a political analyst with the embassy, said a budget of £300,000 had been allocated by the embassy to establish contacts with political groups, individuals and activists.«
via Embassy official ‘confesses’ UK role in riots – Times Online .
Ef í útlöndum – því ekki heima hjá sér? (Eða þá á Íslandi – ef um “íslenskar” löggur er um að ræða? Þeir læra ýmislegt misjafnt í “útlöndum” – því hef ég komist að síðustu árin…
»Við höfum lengi búið við það Íslendingar að stjórnmála- og embættismenn okkar koma flestir úr sama menntaskólanum og sömu lagadeildinni í HÍ; fæstir þeirra hafa einu sinni komið til útlanda enda myndu þeir þá eiga á hættu að detta úr goggunarröðinni í pólitíkinni.
Þessi heimalningsháttur hefur löngum verið einkenni á stjórnmálunum hér; það mætti jafnvel tala um úrkynjun í því sambandi.«
Þótt svo við höfum “lýðræði” er ekki þar með sagt að við höfum eitthvað “val”; tryggilega hefur verið komið í veg fyrir að smáflokkar skemmi fyrir Fjórflokknum með breytingum á kosningalögum. Nærri 100% atkvæðavægi, þar sem það er mest, getur heldur ekki talist til eiginlegs lýðræðis – svo þótt hlutirnir eru svolítið kjósendum að kenna, þá er þeim þó örlítil vorkunn; þeir höfðu ekkert val…
»Kostnaður Seðlabankans vegna sérfræðiráðgjafar bandaríska fjárfestingarbankans JP Morgan nam rúmlega einum milljarði króna á síðasta ári.«
via Ráðgjöf kostaði milljarð – mbl.is.
Sjá einnig: Eðlilega staðið að kaupum á ráðgjöf – Vísir.is
Öryrkjar og aldraðir voru krafðir um endurgreiðslu 4ra milljarða – ásamt að taka á sig nærri tveggja milljarða tekjuskerðingu um síðustu áramót. Auðvitað betra að eyða aurunum í “ráðgjöf”, sem hefur skilað okkur hvert? Í faðm enn verri arðræningja, sem hafa skilið eftir sig sviðna jörð um allan heim? Og svo réttlætir Ríkisendurskoðun þessa sóun! Ísland: Minnst spillta landið í veröldinni! Það var okkur selt að minnsta kosti.
Vegna fréttar á Vísi.is: Á móti nafnlausum ábendingum…
Opið bréf til Persónuverndar; (mun birtast á skorrdal.is. ásamt svari – eða svörum – frá Persónuvernd.)
Til þeirra er málið varðarPersónuvernd tekur það upp hjá sjálfri sér – eða vegna ábendingar – að standa gegn “naflausum ábendingum” varðandi fiskveiði á Íslandi. Vegna þessarar ábendigar, langar mig að fá svör við eftirfarandi spurningum:
1) Því taldi Persónuvernd ekki ástæðu til að senda út slíka athugasemd, þegar lögreglan byrjaði með “fíkniefnasímann” (800 5005) og bauð hverjum sem er að ákæra samborgara sína, nafnlaust og án ábyrgðar?
2) Því var engin ástæða fyrir Persónuvernd, að gera athugasemd við ónafngreindar ábendingar sem sendar eru inn til Vinnumálastofnunnar, vegna svika á atvinnuleysisbótum? (http://vinnumalastofnun.is/abending/)
3) Því hefur ekki verið ástæða hjá Persónuvernd, til að kvarta yfir naflausum ábendingum til Tryggingastofnunar Ríkisins? (http://www.tr.is/abending)
Með von um skjót svör.
Ólafur Skorrdal
skáld
Afrit send til:
Dómsmálaráðuneytisins
Alsherjarnefndar Alþingis
Nefndarmenn Alsherjarnefndar
Forsætisnefndar Alþingis
Hr. Landlækni, Matthías Halldórsson
ásamt
Fréttamiðlum landsins
Okkur er oft sagt, að “byltingin étur börnin sín”… Að vissu leiti má það vera rétt – en hið raunverulega gleymist oftast, þegar þessir frasi er notaður: Byltingin talar sjaldnast um börnin “sín”.
Hverjir eru það sem þjást mest í stríði og átökum, ef ekki börnin okkar? En er það næg ástæða til að aðhafast ekkert og láta kúgunina standa? Láta allt yfir sig ganga, til þess eins að vernda börnin okkar? Hver verður þá hin raunverulega framtíð þeirra, sem “land” okkar eiga að erfa? Er það sú “paradís” sem við viljum afkomendum okkar, hvar sem í flokki við erum? Það held ég ekki.
Svo eru til dæmi, þar sem “börnin okkar” eru misnotuð, í tilgangi, sem fáir njóta góðs af. Til dæmis “fíkniefnastríðið“, sem eytt hefur verið óhugnanlegu fé í, án nokkurs árangur – í raun aðeins til að “vernda börnin okkar“. En hver eru í raun fórnarlömb þessa “stríðs” Stjórnvalda gegn eigin þjóð? Eru það ekki einmitt “börnin” okkar; unga fólkið, sem getur ekki borið hönd yfir höfuð sér, vegna vanþekkingar sinnar á lögunum og réttindum sínum? “Stríð” sem flestir virðast samþykkja, en í raun er beint gegn réttarríkinu og lýðveldinu, í öllu sínu veldi?
Við viljum öll vernda börnin okkar, en stundum er okkur fengin vopn í hendur, sem frekar skaðar þeirra framtíð en verndar hana. Vopn, sem frekar berjast gegn frelsi þeirra og réttlæti – frelsi okkar allra – frekar en að byggja þau upp og gera að betri einstaklingum. Okkur er sagt ýmislegt, sem vekur ugg í brjósti okkar – sérstaklega þegar kemur að framtíð barna okkar. En sumt af því – því miður – er bara blekking, til þess eins að stýra hugarfari okkar í eina átt.
Það er hagur hverra stjórnvalda, að viðhalda lyginni og sjá til þess, að “þegnar” þeirra lifi í ótta, óvissu og ósætti. Aðeins þá, er hægt að stjórna því hvernig fólk hagar sér, upplifir “sannleikann” og lætur stjórnast af áróðri þeim, er frá Stjórnvöldum kemur. Þannig hefur því verið háttað frá alda öðli – og þannig er því háttað enn þann dag í dag. Meira að segja á Íslandi – hinu “óspillta”…
Íslensk stjórnvöld vilja ósætti og sundrung meðal okkar Borgaranna, því samstaða okkar gæti þýtt þeirra endalok; það má sjá á baráttunni gegn Stjórnarskrárbreytingum Sjálfstæðisflokksins – og ákvörðun núverandi Ríkisstjórnar um “ráðgefandi” Stjórnlagaþing og ESB kosningu. Þetta er allt saman samtrygging valdhafanna, þótt svo þeir kjósi að kalla sig “Samfylkingu”, “Sjálfstæðisflokk”, “Framsóknarflokk” eða “Vinstri-græna”; þetta er allt saman sama mafían, ef málin eru skoðuð djúpt ofan í kjölin.
Til þess að okkar bylting “éti” ekki börnin sín, þurfum við að læra að standa saman; læra að bera virðingu fyrir hvort öðru – og læra að bera virðingu fyri framtíð barna okkar og þeirra frelsi, hvort sem það er til orðs eða æðis. Við þurfum að læra að bera virðingu fyrir hvort öðru, skoðunum hvers annars, því annars munu “börn” okkar ekki læra að lifa í sátt og samlindi hvort við annað.
Öll viljum við að börn okkar hafi sama rétt til náms, heilbrigðis, lífernis og mannréttinda. Eða það vona ég svo sannarlega. Sum okkar hafa aðrar skoðanir á málunum, hverjum sé best treystandi til að framfylgja þeim réttindum. En ég held – ég vona – að við öll séum sammála að öll okkar börn eigi að lifa í áhyggjulausum heimi, þar sem þau þurfa ekki að eiga á hættu að þeirra ævistarfi sé stolið af þeim, heldur geta treyst því, að þeirra framlag til lífsins sé traust, hvaða skoðunum foreldrar þeirra aðhyllist. Þess vegna er það mín skoðun, að í raun viljum við öll það sama fyrir okkar börn, hvort sem við eigum þau eða ekki. Því þurfum við þá að rífast um hægri og vinstri? Því getum við ekki verið sammála um að færa börnum okkar þá bestu framtíð sem við mögulega getum – án þess að nokkur einstaklingur eða fyrirtæki geti rænt þau henni, án þess að VIÐ höfum nokkuð við því að segja?
Nú er tími til að leggja niður alla flokkadrætti í okkar samfélagi; þeir hafa sundrað okkur einum of lengi – og lagt samfélag okkar í rúst. Nú þurfum við, mínir kæru samlandar, að standa saman fyrir framtíð barna okkar – og ekki láta nein öfl í samfélaginu standa í vegi fyrir okkur. “Hægri” eða “vinstri” eru úrelt hugarfóstur lénsaflanna, sem hingað til hafa ráðið of miklu; framtíðarstefna er það sem ætti að ráða okkar hugsun.
Vissulega getur okkur greint á um, hvort Ríkið eigi að reka hitt eða þetta – en við hljótum að geta verið sammála um, að börnin okkar eigi þá bestu framtíð skilið, sem við getum boðið þeim. Hvaða skoðunum sem við aðhyllumst. Annað, mínir kæru samlandar, er bara hrein geðveiki.
Ef við getum ekki verið sammála um það, mun byltingin sannarlega éta börnin okkar – hvar sem við höldum að við stöndum í pólitíkinni. Og það væri vissulega hin versta gjöf, sem við gæfum börnum framtíðarinnar.
Stöndum saman! Byggjum betri framtíð!
—
Sjá einnig:
Nýja Kaupþing og skilanefnd Kaupþings telja…
Financial collapse: Confidential exposure analysis of 205 companies…
Icelandic bank Kaupthing threat to WikiLeaks over confidential large exposure report, 31 Jul 2009
Eyjan » Þór Saari: Þorgerði Katrínu ekki sætt í embætti eftir upplýsingar um lán til eiginmanns.
Eyjan » Réttlát reiði almennings ekki sefuð fyrr en eignir auðkýfinganna hafa verið gerðar upptækar.
Ég hef bara eitt að segja:
En hver hlustar svo sem á röddu einmanna skálds, sem hrópar í tómið?
Nýjar athugasemdir